04.09.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Crouch til Norwich. (Staðfest)

Peter Crouch í baráttu um boltann.


Peter Crouch í baráttu um boltann.

Norwich hefur fengið Peter Crouch sóknarmann Aston Villa að láni í þrjá mánuði. Hinn hái Crouch sem er í U-21 árs landsliði Englendinga hefur gengið illa að komast í liðið hjá Aston Villa og verður því hjá Norwich þangað til í desember að minnsta kosti. Crouch kom frá Portsmouth til Aston Villa í mars 2002 og kostaði 5 milljónir punda.
