Fotbolti.net
04.09.13 - 19:34
Elvar Geir Magnússon

Fréttamannafundur Íslands í Bern í heild sinni

Auglýsing
Fréttamannafundur Íslands í Bern í heild sinni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Iceland
Lars Lagerback, Aron Einar Gunnarsson og Kolbeinn Sigþórsson sátu fyrir svörum á fréttamannafundi í Bern í dag. Hægt er að horfa á fundinn í heild í spilaranum hér að ofan.
„Við berum virðingu fyrir Sviss sem er með reynslumikinn þjálfara, Ottmar Hitzfeld. Það þarf bara að skoða stöðuna í riðlinum og styrkleikalista FIFA til að sjá að við erum að fara í mjög erfiðan leik á föstudag.\" sagði Lagerback meðal annars á fundinum.

„Við lékum vel gegn þeim í Reykjavík og áttum ekki skilið að fara tómhentir úr þeim leik ef frammistaðan og færin eru skoðuð. Ég vona að við getum endurtekið frammistöðum á föstudaginn og stefnum á sigur. Í fótbolta er alltaf möguleiki.\"

„Við höfum ekki það mikla breidd í hópnum að við megum við miklum skakkaföllum. Mér finnst við hafa bara átt einn slæman leik í keppninni og hann var gegn Kýpur. Ísland er lítil þjóð og þarf á öllum sínum bestu mönnum að halda,\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.