23.10.26 - 11:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Segir ljóst að Stefan muni kveðja Keflavík á morgun

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefan Alexander Ljubicic mun að öllum líkindum spila sinn síðasta leik fyrir Keflavík, í bili hið minnsta, þegar Keflvíkingar heimsækja ÍA í Akraneshöllina. Leikurinn hefst 14:00.
Stefan, sem er markahæsti leikmaður liðsins, er að renna út á samningi og hefur verið orðaður við önnur félög í Bestu deildinni. Stefan er 27 ára framherji sem hefur verið á mála hjá félögum erlendis og gætu erlend félög horft í mörkin tólf sem Stefan hefur skorað fyrir nýliðana. Hann er á bekknum í liði ársins hér á Fótbolti.net fyrir frammistöðu sína í sumar.

TENGT EFNI
Einn heitasti bitinn á markaðnum - „Veit að það er áhugi"
„Hann mun yfirgefa Keflavík, spurning hvort hann byrji leikinn gegn ÍA. Það verða eflaust einhver lið á eftir honum, hann er svolítið einstakur leikmaður með þessa hæð og styrk, góður skallamaður og getur klárað með hægri og vinstri."
„Það er spurning hvort Stjarnan horfi í hann ef Emil Atla verður ekki áfram. Ég gæti trúað því að Rúnar Páll reyni að sækja hann í Garðabæ, svo er spurning með Breiðablik, Val og KA ef þeir halda sér uppi. Það verður örugglega slegist um Stefan," segir Kristján Óli Sigurðsson í Þungavigtinni.
Stefan hefur verið orðaður við FH, Stjörnuna og Víking síðustu vikur.