Fotbolti.net
23.10.26 - 08:30
Elvar Geir Magnússon

Hurzeler hefur engan áhuga á að taka við Man Utd

Fabian Hurzeler, stjóri Brighton.

Fabian Hurzeler, stjóri Brighton.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Stjóramál Manchester United eru áberandi í slúðrinu en Eddie Howe er talinn líklegastur ef Michael Carrick verður látinn taka pokann sinn.
Manchester United þyrfti líklega að greiða heimsmetupphæð ef félagið vildi fá Fabian Hurzeler frá Brighton í stað Michael Carrick. (Telegraph)

Hurzeler, stjóri Brighton, hefur hinsvegar engan áhuga á starfinu hjá Manchester United ef það losnar. (Talksport)

Jason Wilcox, yfirmaður fótboltamála hjá Manchester United, virðist helst vilja ráða Eddie Howe, fyrrum stjóra Newcastle United, ef félagið rekur Carrick. (Talksport)

Manchester United gæti horft til Julian Nagelsmann ef félagið slítur samstarfinu við Carrick, en þessi fyrrum stjóri Bayern München og þýska landsliðsins hefur áhuga á starfinu. (Telegraph)

Unai Emery, stjóri Aston Villa, er einnig lista Manchester United yfir mögulega arftaka Carricks. (i news)

Manchester United hefur rætt við Antonio Conte, fyrrum stjóra Chelsea og Tottenham, um möguleikann á að hann snúi aftur í ensku úrvalsdeildina. (La Repubblica)

Arsenal hyggst reyna að fá spænska kantmanninn Alex Baena (25) frá Atletico Madrid í janúarglugganum. (FootballTransfers)

Arsenal fylgist einnig með Gustavo Varela (21), framherja Monza, en portúgalski leikmaðurinn er einnig á óskalista Napoli og Benfica. (Gazzetta dello Sport)

Bayer Leverkusen hefur áhuga á brasilíska varnarmanninum Gleison Bremer (29) og gæti hann yfirgefið Juventus í janúar. (Gazzetta dello Sport)
Julian Nagelsmann.

Julian Nagelsmann.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.