22.10.26 - 16:21
Kári Snorrason
Árni Snær leggur hanskana á hilluna

Gekk til liðs við Stjörnuna frá ÍA fyrir tímabilið 2023.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Árni Snær Ólafsson, markvörður Stjörnunnar, mun leggja hanskana á hilluna eftir leik liðsins gegn Val í lokaumferð Bestu deildarinnar á laugardag.
Árni hefur ekki sjálfur tilkynnt um ákvörðun sína en Stjarnan greindi frá því að hann og Guðmundur Kristjánsson myndu leika sína síðustu leiki á ferlinum á laugardag.
Árni, sem er 35 ára gamall, hefur staðið í marki Stjörnunnar síðustu fjögur tímabil en þar áður var hann hjá uppeldisfélaginu ÍA.

Fleiri breytingar verða hjá Garðabæjarfélaginu því Sæmundur Friðjónsson lætur jafnframt af störfum sem yfirmaður knattspyrnudeildar Stjörnunnar.
Halldór Orri Björnsson tekur við keflinu af Sæmundi, sem hefur starfað í sjálfboðavinnu fyrir félagið undanfarin 16 ár.
Þá verður Bjarni Jóhannsson heiðraður fyrir leikinn gegn Val en Bjarni er fyrrverandi þjálfari Stjörnunnar og gaf það út á dögunum að hann væri hættur í þjálfun.