Fotbolti.net
23.10.26 - 11:00
Ívan Guðjón Baldursson

Laporta um Real: Getur bara verið einn hani í búinu

Laporta um Real: Getur bara verið einn hani í búinu
Canon

Mynd: EPA

Joan Laporta forseti Barcelona telur að áform Real Madrid um að taka yfir sem besta lið Spánar muni ekki ganga upp meðan stefna félagsins á leikmannamarkaðinum heldur áfram að vera sú sama.
Mourinho hefur ekki náð að lægja öldurnar í klefanum
TENGT EFNI

Mourinho hefur ekki náð að lægja öldurnar í klefanum

Laporta telur að Real Madrid hafi gert mistök með að vera með alltof margar stórstjörnur í sama liði. Marga menn sem eru með mjög stóra persónuleika og vilja spila alla leiki, sem veldur núningi og ágreiningi innan hópsins.

„Ég sagði það þegar Mbappé fór til Real Madrid. Það virkar ekki að vera með meira en einn hana í hænsnabúi. Það gengur bara ekki upp," segir Laporta.

„Í fótbolta snýst allt um liðsheildina og liðsandann. Verkefnið mun aldrei ganga upp ef þessir hlutir eru ekki í lagi. Þetta er einn af styrkleikum Barcelona, við erum með frábæra leikmenn í hópnum en þeir eru allir að spila fyrir liðið. Þeir ná vel saman og liðið er alltaf í forgangi framyfir einstaklinginn.

„Það er að stórum hluta Hansi Flick og Deco að þakka, þeir eru frábærir í störfum sínum sem þjálfari og yfirmaður fótboltamála."
Laporta um Real: Getur bara verið einn hani í búinu
Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona9+3027
2Atletico Madrid9+1122
3Real Madrid9+1421
4Betis9+219
5Real Sociedad9016
6Sevilla9-214
7Alaves9+311
8Celta9+311
9Deportivo9+111
10Osasuna9-811
11Levante9-210
12Villarreal909
13Athletic8-19
14Vallecano8-59
15Getafe9-69
16Espanyol9-18
17Racing Santander9-128
18Elche9-67
19Valencia9-96
20Malaga9-124
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.