Fotbolti.net
23.10.26 - 10:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Markús Máni vakið athygli erlendis

Markús Máni vakið athygli erlendis
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í síðasta mánuði var fjallað um áhuga Zilina á Degi Orra Garðarssyni, leikmanni Vals, félagið bauð í Dag en hann hafnaði sjálfur tilboði félagsins.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net sýndi slóvakísku félagið öðrum íslenskum leikmanni áhuga fyrr á þessu tímabili. Zilina var þá með augastað á Markúsi Mána Péturssyni sem er miðvörður KA. Zilina endaði í 4. sæti á síðasta tímabili og er sem stendur í 2. sæti deildarinnar.

Fleiri erlend félög eru með hann á blaði hjá sér en hann er á sínu fyrsta tímabili í efstu deild sem byrjunarliðsmaður.
Markús hefur byrjað 22 deildarleiki í sumar og skorað eitt mark. Hann hefur heilt yfir átt gott tímabil, skorar hæst í deildinni þegar horft er í tæklingar samkvæmt tölfræði Fotmob og mjög hátt þegar horft er í návígi.

Hann er tvítugur og lék með Dalvík/Reyni tímabilið 2024. Hlutverk hans stækkaði síðasta vetur þegar KA seldi Ívar Örn Árnason til Breiðabliks. Markús er samningsbundinn KA út næsta tímabil.

Markús verður væntanlega í eldlínunni þegar KA tekur á móti ÍBV í lokaumferð Bestu deildarinnar á morgun.

Sá leikur hefst klukkan 14:00.
Markús Máni vakið athygli erlendis
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.