Fotbolti.net
23.10.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Eigandinn vill halda Scott þrátt fyrir mikinn áhuga

Eigandinn vill halda Scott þrátt fyrir mikinn áhuga
Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn Alex Scott hefur verið meðal bestu leikmanna Bournemouth á upphafi nýs tímabils eftir að hafa verið afbragsgóður á síðustu leiktíð.
Má fara fyrir 100 milljónir punda
TENGT EFNI

Má fara fyrir 100 milljónir punda

Hann á aðeins rúmlega eitt og hálft ár eftir af samningi við Bournemouth og gæti því verið seldur í janúar ef nægilega hátt kauptilboð berst. Bournemouth er sagt vilja fá að minnsta kosti 80 milljónir punda fyrir miðjumanninn öfluga og er Chelsea talið leiða kapphlaupið. Sky talar um 80 milljónir en BBC segir 100 milljónir.

Bournemouth reyndi að semja við Scott í sumar en þessi enski landsliðsmaður vill skipta til stærra félags og hafnaði því samningstilboðum. Bournemouth hafnaði 64 milljónum frá Chelsea í sumar en Manchester City, Arsenal og Liverpool eru meðal félaga sem hafa einnig verið orðuð við Scott, ásamt spænska risaveldinu Real Madrid.

„Við erum sannfærðir um að Bournemouth sé rétti staðurinn fyrir Alex Scott til að halda þróun sinni áfram sem fótboltamaður. Við erum að reyna að semja við hann, við viljum ólmir halda honum hjá félaginu til lengri tíma," segir Bill Foley, rúmlega áttræður eigandi Bournemouth.

„Við erum ekki búnir að gefast upp. Stundum fá leikmenn stjörnuglampa í augun og sannfærast um að Chelsea eða Manchester City séu réttu áfangastaðirnir."

23 ára gamall Scott er að glíma við meiðsli þessa dagana eftir síðasta landsleikjahlé, en hann hefur hingað til komið að þremur mörkum í sex leikjum með Bournemouth á upphafi tímabils.
Eigandinn vill halda Scott þrátt fyrir mikinn áhuga
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City7+1221
2Arsenal7+618
3Brighton7+1816
4Chelsea7+413
5Liverpool7+112
6Brentford7+510
7Leeds7+310
8Everton7+110
9Hull City7+19
10Ipswich Town7-49
11Newcastle7-48
12Aston Villa7-48
13Man Utd707
14Crystal Palace7-87
15Bournemouth7-46
16Tottenham7-46
17Coventry7-86
18Fulham7-35
19Nott. Forest7-45
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.