Fotbolti.net
22.10.26 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Amorim: Leikurinn var búinn eftir 20 mínútur

Amorim: Leikurinn var búinn eftir 20 mínútur
Canon

Mynd: EPA

Rúben Amorim þjálfari AC Milan var niðurlútur eftir 3-0 tap á útivelli gegn Bournemouth í deildarkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.
Evrópudeildin: Orri fljótur að skora - Amorim tapaði í Bournemouth
TENGT EFNI

Evrópudeildin: Orri fljótur að skora - Amorim tapaði í Bournemouth

Bournemouth komst í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik eftir að hafa fengið tvær ódýrar en réttmætar vítaspyrnur dæmdar sér í hag. Mike Maignan var rekinn af velli í seinna vítinu og réðu tíu leikmenn Milan ekki við andstæðingana.

„Það er erfitt að tala um frammistöðuna eftir þennan leik. Leikurinn var búinn eftir 20 mínútur," sagði Amorim, sem neitaði að kenna dómaranum um.

„Við verðum að koma í veg fyrir svona mistök, það er mikilvægt að vera með 11 leikmenn á vellinum allan leikinn. Við vörðumst vel einum færri en náðum ekki að skapa mikla hættu.

„Þetta er búið að vera mjög erfitt kvöld fyrir okkur."
Amorim: Leikurinn var búinn eftir 20 mínútur
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.