Grímsi: Vildi ekki hitta neinn og lokaði mig inni í herbergi í tvo daga

Það væri auðvitað ömurlegt að falla en ég ætla mér ekki að falla

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lífið er meira en fótbolti og maður er búinn að ná að hugsa um eitthvað annað en þetta

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gaman að spila leikina við Þór.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Mér finnst bara súrt að annaðhvort Akureyrarliðið þurfi að falla

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

svo trúi ég ekki öðru en að Jói Kalli sé það mikill fagmaður að hann nálgist leikinn og ætli að vinna hann

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markahæsti leikmaður KA á tímabilinu með ellefu mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það væri auðvitað ömurlegt að falla en ég ætla mér ekki að falla

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framundan er leikur KA og ÍBV í lokaumferð deildarinnar. Fyrir lokaumferðina er KA í fallsæti og þarf að fá fleiri stig en grannarnir í Þór til að halda sæti sínu í Bestu deildinni. Þór mætir FH í Kaplakrika á sama tíma.
Það er möguleiki á að KA falli á laugardaginn, er það eitthvað sem þið stressið ykkur á?
„Í dag er ég sultuslakur en svo þegar að kemur að laugardeginum getur verið að það komi einhver stressfílingur í mann eða einhver fiðringur. Það væri auðvitað ömurlegt að falla en ég ætla mér ekki að falla."
Allir leikir skipta máli fyrir leikmenn
Hvernig er einmitt tilfinningin fyrir laugardeginum?
„Það er mjög erfitt að segja. FH er ekki að keppa um neitt og þeir eiga að spila við lið sem við erum að reyna að fella. Ég hef ekki trú á neinu öðru en að leikmenn FH vilji spila sinn leik. Það er oft talað um að þeir séu ekki að keppa um neitt og muni slappa eitthvað af í þeim leik, en það skiptir hver einasti leikur máli fyrir leikmann. Það eru allir að horfa á leikinn og auðvitað viltu standa þig og svo trúi ég ekki öðru en að Jói Kalli (þjálfari FH) sé það mikill fagmaður að hann nálgist leikinn og ætli að vinna hann."
EIna sem skiptir máli er hvað við gerum
Fyrst og fremst snýst þetta um að þið klárið ykkar væntanlega?
„Já, við getum ekki hugsað um neitt annað og ég er ekki að hugsa um neitt annað. Þó maður hafi auðvitað hugsað fyrstu dagana eftir Valsleikinn, sem voru mjög þungir, þá pældi maður eitthvað í þessu en maður er búinn að ná því úr sér. Eina sem skiptir máli erum við og það sem við gerum í okkar leik og svo bara kemur allt annað í ljós."
Finnst súrt að annaðhvort Akureyrarliðið þurfi að falla
Er eitthvað aukakrydd að þetta verði annaðhvort Þór eða KA sem fellur?
„Nei, ég persónulega væri til í að hafa bæði liðin í efstu deild og ég á marga félaga sem eru Þórsarar og ég myndi finna til með þeim ef þeir færu niður, þó það sé örugglega ekki í hina áttina, ég held að það sé meiri hatur í hina áttina einhvern veginn. Ég horfi ekkert á að það sé eitthvað extra sætt að fella Þór því leikirnir í sumar hafa verið geðveikir og mér finnst mjög gaman að spila þá. Mér finnst bara súrt að annaðhvort Akureyrarliðið þurfi að falla."
Býst við Eyjamönnum 100% klárum
Hvernig meturðu ÍBV á þessum tímapunkti?
„Það er einmitt mjög erfitt að lesa í þá líka, þeir koma ekkert í leik og ætla að gera þetta með einhverju hálfkáki. Ef ég væri í þeim sporum eða FH-sporum eða bara einhvers liðs sem var ekki að keppa um neitt, ég myndi vilja fara inn og ég vildi skora, ég myndi leggja mig fram og ég væri ekkert til í að fara inn á fótboltavöll og hugsa eftir hvað ég hefði getað gert betur og eitthvað svoleiðis dæmi. Þannig að ég held að þeir mæti 100% í þennan leik og við þurfum að hafa fyrir því að vinna þá."
Heldurðu að þetta verði nokkuð opinn leikur á laugardaginn?
„Það gæti alveg farið svo. Við þurfum náttúrulega að sækja sigur og þeir vilja örugglega líka vinna og hafa gaman, slútta þessu tímabili almennilega."
Fór langt niður eftir síðasta leik
Hvernig var andinn eftir tapið á móti Val um síðustu helgi?
„Það var mjög þungt eins og ég sagði og ég lokaði mig inni í herbergi í tvo daga í röð. Ég málaði herbergið hjá guttanum mínum og var með tónlist í botni, ég vildi helst ekki hitta neinn mann. Tilfinningin var ömurleg, þá var þetta komið úr okkar höndum og maður fékk allar svartsýnishugsanir á þeim tímapunkti en svo nær maður því bara út úr sér. Lífið er meira en fótbolti og maður er búinn að ná að hugsa um eitthvað annað en þetta, búinn að ná að koma því í hausinn á sér að þetta er bara annar leikur og þetta fer eins og það fer."
Stuðningurinn skiptir öllu máli
Hversu miklu máli skiptir að fá góðan stuðning?
„Öllu máli, ég vona að stúkan fyllist, ef ekki núna þá aldrei. Við þurfum á öllu KA-fólki að halda. Það hefur sýnt sig eins og þegar við fórum í bikarúrslit að stuðningurinn skiptir gríðarlega miklu máli og maður fann það líka þegar við unnum bikarinn að þetta skiptir alla inn á vellinum máli og ég hvet alla KA-menn til að koma á laugardaginn klukkan tvö."
Forréttindi fyrir Þórsara
Heldurðu að það sé eitthvað stress í Þórsurum að þeir séu í þeirri stöðu að þeir geta klúðrað þessu?
„Nei, það eru örugglega bara forréttindi fyrir þá að vera í þeirri stöðu að þetta sé í þeirra höndum. Það er örugglega sami fílingur hjá þeim og okkur að þeir megi ekki misstíga sig því þeir trúa eflaust að við vinnum okkar leik. Þá mega þeir ekki misstíga sig og þeir þurfa þá að sækja til sigurs líka. Þetta eru örugglega mjög svipaðar tilfinningar myndi ég halda fyrir bæði lið," segir Grímsi.

Lífið er meira en fótbolti og maður er búinn að ná að hugsa um eitthvað annað en þetta

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gaman að spila leikina við Þór.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Mér finnst bara súrt að annaðhvort Akureyrarliðið þurfi að falla

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

svo trúi ég ekki öðru en að Jói Kalli sé það mikill fagmaður að hann nálgist leikinn og ætli að vinna hann

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markahæsti leikmaður KA á tímabilinu með ellefu mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
