Fotbolti.net
23.10.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Gerrard: Mögulega besti fótboltamaður í sögu Englands

Gerrard: Mögulega besti fótboltamaður í sögu Englands
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Steven Gerrard starfar sem sparkspekingur hjá TNT Sports og ræddi um samlanda sinn Harry Kane eftir 2-2 jafntefli FC Bayern gegn Arsenal í vikunni.
Kane getur jafnað met Ronaldo í næstu umferð
TENGT EFNI

Kane getur jafnað met Ronaldo í næstu umferð

Gerrard telur Kane eiga skilið að fá Ballon d'Or verðlaunin í sinn hlut og óttast að þetta sé síðasta tækifærið fyrir hann. Ballon d'Or verðlaunaafhendingin fer fram í London á mánudagskvöldið.

„Hann er mögulega besti fótboltamaður í sögu Englands og það er stærsta hrós sem ég get gefið honum. Þegar talað er um goðsagnir enska landsliðsins verður nafnið hans Harry Kane að vera með í umræðunni," sagði Gerrard.

„Hann er svo gáfaður leikmaður. Hann er útsjónasamur og með ótrúlega sendingagetu auk þess að vera stórhættulegur fyrir framan markið. Þetta er leikmaður í heimsklassa sem getur gert allt. Ég vona að hann fái þá viðurkenningu sem hann á skilið á verðlaunaafhendingu Ballon d'Or.

„Harry tikkar í öll boxin og ég vona að hann hreppi þessi verðlaun. Ég óttast að það sé núna eða aldrei fyrir hann að vinna Ballon d'Or."
Gerrard: Mögulega besti fótboltamaður í sögu Englands
Canon

Mynd: EPA

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern6+1714
2Dortmund6+714
3Freiburg6+913
4Leverkusen6+713
5Mainz6+410
6Elversberg6+110
7RB Leipzig6+59
8Werder609
9Hamburger6-99
10Augsburg6+48
11Frankfurt6-68
12Köln6-37
13Stuttgart6-26
14Hoffenheim6-36
15Schalke 046-35
16Paderborn6-45
17Union Berlin6-125
18Gladbach6-120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.