Fotbolti.net
22.10.26 - 22:17
Ívan Guðjón Baldursson

Carrick þarf sigur gegn Bournemouth

Carrick þarf sigur gegn Bournemouth
Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick mun stýra Manchester United þegar liðið tekur á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Man Utd byrjað að skoða í kringum sig
TENGT EFNI

Man Utd byrjað að skoða í kringum sig

Þjálfarastarf Carrick er í hættu eftir arfaslaka byrjun á nýju tímabili og var 4-1 tap gegn Como í miðri viku ekki hjálpsamlegt. Sky Sports segir að Carrick verði áfram við stjórnvölinn gegn Bournemouth en að það styttist í að hann verði rekinn takist honum ekki að rétta úr kútnum.

Frétt frá Sky segir að leikurinn gegn Bournemouth geti ráðið úrslitum fyrir framtíð Carrick en hinir ýmsu þjálfarar hafa verið orðaðir við starfið hjá Rauðu djöflunum á síðustu dögum.

Eins og greint hefur verið frá mun Bruno Fernandes ekki missa fyrirliðabandið þrátt fyrir ummælin sín eftir tapið gegn Como og er ekki búist við að hann hljóti refsingu.

Meiðslavandræði hafa sett strik í reikninginn á nýju tímabili en stjórnendur vilja byrja að sjá árangur eftir að hafa keypt nýja miðjumenn til félagsins fyrir rúmlega 150 milljónir punda síðasta sumar.
Carrick þarf sigur gegn Bournemouth
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City7+1221
2Arsenal7+618
3Brighton7+1816
4Chelsea7+413
5Liverpool7+112
6Brentford7+510
7Leeds7+310
8Everton7+110
9Hull City7+19
10Ipswich Town7-49
11Newcastle7-48
12Aston Villa7-48
13Man Utd707
14Crystal Palace7-87
15Bournemouth7-46
16Tottenham7-46
17Coventry7-86
18Fulham7-35
19Nott. Forest7-45
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.