23.10.26 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þórsarar urðu að flýta ferðalagi sínu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór heimsækir FH í lokaumferð Bestu deildarinnar á morgun og þar sem leikurinn er liður í lokaumferð deildarinnar þá má ekki treysta á flugsamgöngur á leikdegi.
Þórsarar áttu bókað flug á laugardagsmorgun en urðu í vikunni að breyta ferðatilhugun sinni eftir að hafa verið minntir á reglur KSÍ.

„Leikir í síðustu umferð deilda, sem geta haft úrslitaáhrif á stöðu liða í efstu sætum (rétt til þátttöku í Evrópukeppni), skulu ávallt
fara fram á sama tíma nema óviðráðanlegar aðstæður (t.d. veður) valdi að því verði ekki við komið að mati mótanefndar. Sama á við um leiki, sem geta haft úrslitaáhrif á fall úr deild. Liði, sem ferðast til leiks í þessum umferðum, er óheimilt að treysta á flug á leikdegi og skal nota annan ferðamáta til að komast á leikstað á réttum tíma," segir í reglum sambandsins.
Þórsarar flýttu æfingu sinni í dag, fljúga svo suður og gista þar í nótt.
Þór mætir FH klukkan 14:00 á morgun og á sama tíma tekur KA á móti ÍBV. Fyrir lokaumferðina er Þór með eins stigs forskot á KA og ljóst að annað liðið mun falla niður í Lengjudeildina á morgun.