23.10.26 - 10:30
Elvar Geir Magnússon
Endar Heimir Guðjóns á Akranesi?

Heimir Guðjónsson hefur ekkert svarað fjölmiðlum síðustu daga.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Akranesvöllur.

Eitt aðalumræðuefnið í fótboltahlaðvörpum landsins er þjálfarastarf ÍA. Staða Lárusar Orra Sigurðssonar er í óvissu og Heimir Guðjónsson hefur verið sterklega orðaður við starfið.
Einhverjir hafa gengið það langt að fullyrða að Heimir muni taka við ÍA en það virðist ekki frágengið. Heimi tókst ekki að koma Fylki upp úr Lengjudeildinni í sumar en Árbæingar vilja halda honum áfram við stjórnvölinn. Hann hefur ekki svarað fjölmiðlum undanfarna daga.
Fótbolti.net ræddi við nokkra stuðningsmenn ÍA í samantekt sem birtist í gær.

TENGT EFNI
Stuðningsmenn ÍA um framtíð Lárusar Orra - „Kominn á endastöð“
„Það er ekki annað hægt en að bera ákveðna virðingu fyrir Heimi Guðjóns og þeim árangri sem hann hefur náð með sín lið. Ég er þó ekki viss um að hann sé besti kosturinn fyrir ÍA í dag," segir Elfa Björk Sigurjónsdóttir.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Sigurður Jónsson og Lúðvík Gunnarsson eru önnur nöfn sem eru nefnd sem mögulegir kostir í stöðuna. Nafn Heimis er þó á vörum flestra.
„Ég hef heyrt verri hugmyndir en að Heimir Guðjóns taki við þessu. Hann hefur sýnt að hann getur haldið utan um alls konar verkefni," segir Sverrir Mar Smárason
„Heimir Guðjóns væri klárt upgrade fyrir mér. Hann er með þetta “know how”, unnið 11 titla á sínum ferli, verið í leiknum í 30 ár. Ég held að hann myndi smellpassa við þetta ÍA project sem er í gangi," segir Hilmar Halldórsson og Snorri Kristleifsson tekur undir það:
„Af raunhæfum kostum líst mér vel á Heimi Guðjónsson. Hjá ÍA fengi hann kjörinn vettvang til að undirstrika að hann sé ennþá meðal bestu þjálfara landsins. Heimir kæmi með sigurhefð inn í félagið á ný, en seinasti þjálfari ÍA með titla á bakinu var Guðjón Þórðarson árið 2008."
Málin hljóta að skýrast betur í komandi viku en ÍA mætir Keflavík í síðasta deildarleik sínum á tímabilinu á morgun.