22.10.26 - 21:37
Ívan Guðjón Baldursson
Amorim: Ég elska Man Utd virkilega mikið

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Rúben Amorim þjálfari AC Milan svaraði spurningum fyrir leik liðsins gegn Bournemouth í Evrópudeildinni sem fór fram fyrr í kvöld.

TENGT EFNI
Evrópudeildin: Orri fljótur að skora - Amorim tapaði í Bournemouth
Amorim var meðal annars spurður út í stöðu Michael Carrick hjá Manchester United og hvort hann finndi til með þjálfaranum sem gæti verið rekinn á næstu vikum, líkt og henti Amorim í janúar.
„Það mikilvæga er að ég er hérna sem þjálfari Milan og ég þarf að virða það. Það eina sem ég get sagt um Manchester United er það sama og ég sagði þegar ég skrifaði undir hjá félaginu," sagði Amorim.
„Ég elska félagið og hvað sem gerðist á dvöl minni hjá félaginu breytir því ekki. Ég hélt áfram með mitt líf og er tekinn við öðru stórveldi sem er með mikið af vandamálum sem þarf að leysa og ég þarf að einbeita mér að því. Ég þarf að einbeita mér að mínu félagi, mínum leikmönnum og mínu starfsfólki, ekki því sem er að gerast hjá Manchester United.
„Ég endurtek að ég elska Man Utd virkilega mikið og hef gert mjög lengi."
Milan steinlá svo gegn Bournemouth fyrr í kvöld en dómgæslan var umdeild þar sem dæmdar voru tvær vítaspyrnur og rautt spjald í fyrri hálfleik.