Fotbolti.net
04.09.26 - 09:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Liverpool klárar kaupin á N'Guessan (Staðfest)

Liverpool klárar kaupin á N'Guessan (Staðfest)
Canon

Mynd: Liverpool

Liverpool kynnti í dag Djylian N'Guessan sem nýjan leikmann félagsins. Félagið kaupir hann frá franska félaginu Saint-Etienne og verður formlega leikmaður Liverpool 1. janúar.

Hann er 18 ára franskur sóknarmaður sem mun spila á láni með Brest í frönsku úrvalsdeildinni á tímabilinu, en Saint-Etienne er í B-deildinni.
Hann þreytti frumraun sína hjá Saint-Etienne fyrir einu og hálfu ári síðan og var valinn í lið mótsins á EM U17 landsliða fyrir rúmu ári.

Talið er að Liverpool greiði um sex milljónir punda fyrir Frakkann sem spilar oftast á kantinum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.