Fotbolti.net
04.09.26 - 15:04
Elvar Geir Magnússon

Yann Gboho til Coventry (Staðfest)

Yann Gboho.

Yann Gboho.

Canon

Mynd: Coventry

Coventry City hefur staðfest kaup á kantmanninum Yann Gboho frá Toulouse. Öllum pappírum varðandi skiptin hafði verið skilað áður en glugganum var lokað á þriðjudaginn.
Hins vegar þurfti staðfestingu frá FIFA sem hefur síðan verið veitt.

Gboho er 25 ára og fæddist á Fílabeinsströndinni. Hann er frændi Desire Doue, framherja Paris Saint-Germain og franska landsliðsins.

Gboho spilaði fyrir yngri landslið Frakklands. Hann spilaði 83 leiki fyrir Toulouse í öllum keppnum og skoraði 19 mörk.

Hann hóf feril sinn hjá Rennes og var lánaður til Vitesse Arnhem áður en hann fór til Cercle Brugge.

Coventr, sem Frank Lampard stýrir, hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum á tímabilinu. Liðið mætir Manchester City á morgun.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.