Fotbolti.net
04.11.26 - 13:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Góðar fréttir af Alberti

Albert meiddist á öxl gegn Eistlandi fyrir rúmum mánuði.

Albert meiddist á öxl gegn Eistlandi fyrir rúmum mánuði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eimskip
Þeir Bjarki Steinn Bjarkason, Andri Fannar Baldursson, Albert Guðmundsson, Sverrir Ingi Ingason og Elías Rafn Ólafsson geta ekki verið með landsliðinu í komandi leikjum vegna meiðsla.

Þeir Andri Fannar og Albert spiluðu í síðasta landsleikjaglugga. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari landsliðsins, sagði á fréttamananfundi í dag frá stöðunni á þeim og Elíasi Rafni.
Elías Rafn: Sagt að koma aftur ef ég færi að pissa blóði
TENGT EFNI

Elías Rafn: Sagt að koma aftur ef ég færi að pissa blóði

„Andri Fannar fékk því miður aftan í læri í síðasta leik sem hann spilaði og verður ekki með. Albert er á góðri bataleið, liðið er að pressa mjög mikið á að hann byrji að spila og vonandi eru 2-3 vikur í að hann byrji að spila aftur."

„Meiðsli Elíasar eru miklu alvarlegri en maður gerði sér grein fyrir. Hann er byrjaður að hreyfa sig og æfa, þó ekki af miklum mæli. Ég þori ekki að fara með dagsetningu á hvenær hann verður klár, en frábært að þeir séu á batavegi,"
segir Arnar.
Elías meiddist illa fyrir síðustu landsleiki.

Elías meiddist illa fyrir síðustu landsleiki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Andri Fannar með landsliðinu í síðasta mánuði.

Andri Fannar með landsliðinu í síðasta mánuði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.