Fotbolti.net
22.10.26 - 12:17
Elvar Geir Magnússon

Elías Rafn: Sagt að koma aftur ef ég færi að pissa blóði

Elías á 15 landsleiki fyrir Ísland.

Elías á 15 landsleiki fyrir Ísland.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson var ekki með íslenska landsliðinu í síðasta glugga vegna nýrnameiðsla sem hann varð fyrir með félagsliði sínu, Midtjylland í Danmörku.

Hann meiddist í samstuði þegar hann var að grípa boltann í síðasta leik fyrir landsleikjagluggann og taldi að um meiðsli í rifbeini væri að ræða. Hann fékk mikla verki þegar hann kom heim eftir leikinn og byrjaði að pakka niður fyrir landsliðsverkefnið.

Nýrað rifnaði eftir höggið
„Ég keyrði heim eftir leikinn en þegar ég kom heim varð þetta mjög fljótt miklu verra. Þá fór ég að hugsa að það þyrfti að skoða þetta," segir Elías í viðtali við RÚV. Hann fór á sjúkrahús og fékk verkjalyf.

„Mér var sagt að koma aftur ef ég færi að pissa blóði. Svo gerðist það bara fljótlega eftir að ég kom heim. Þá hringdi ég aftur og svo var farið með mig beint upp á spítala. Ég var samt eiginlega ekkert hræddur. Þetta var meira staðfesting á því að ég væri líklega ekki að fara með landsliðinu. Konan mín var sennilega aðeins smeykari en ég á þessu augnabliki."
Elías undir hnífinn og verður frá í nokkra mánuði
TENGT EFNI

Elías undir hnífinn og verður frá í nokkra mánuði

„Þetta var fjórða stigs skemmd á nýranu því nýrað rifnaði eftir höggið. Það byrjaði að leka þvag út í líkamann og það blæddi svo líka. Ég var mjög heppinn. Það hætti frekar snemma að blæða úr nýranu og líkaminn myndaði einhvers konar blóðtappa í kringum svæðið."

Vonast til að vera kominn á fulla ferð fyrir áramót
Elías fór svo í smávægilega aðgerð og var á sjúkrahúsi í fimm daga. Endurhæfingaferlið er komið á næsta stig og vonast hann til að vera kominn aftur á fullt fyrir áramót.

„Ég fékk mjög góðar fréttir í gær. Nú hefur þessum takmörkunum á því hvað ég má gera að mestu verið aflétt. Ég má núna byrja hægt og rólega að hjóla og byggja upp formið aftur, svo lengi sem ég fæ ekki neitt högg," segir Elías við RÚV.

Hákon Rafn Valdimarsson varði mark íslenska landsliðsins í síðasta glugga og greip tækifærið vel en hann var besti leikmaður íslenska liðsins í glugganum. Hákon verður áfram í marki Íslands í nóvemberglugganum þar sem Ísland mætir Búlgaríu og Lúxemborg í síðustu leikjum sínum í Þjóðadeildarriðlinum.

Heimild: RÚV

Elías leikur fyrir Midtjylland.

Elías leikur fyrir Midtjylland.

Canon

Mynd: EPA

Elías ræddi við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamann á RÚV.

Elías ræddi við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamann á RÚV.

Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.