Fotbolti.net
05.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Ruud Gullit tekur við Feyenoord (Staðfest)

Ruud Gullit tekur við Feyenoord (Staðfest)
Canon
Hollenska félagið Feyenoord tilkynnti í morgun að Ruud Gullit muni taka við þjálfun Feyenoord næsta sumar eða 1.júlí. Hann mun þó fyrst þurfa að fá sig lausan úr starfi sínu hjá hollenska knattspyrnusambandinu þar sem að hann þjálfar U-19 ára landsliðið. Hinn hárprúði Gullit sem að hefur stjórnað bæði Newcastle og Chelsea er hæstánægður með að fá að þjálfa Feyenoord en hann vann sinn fyrsta titil sem leikmaður hjá félaginu árið 1984. Talið er líklegt að Gullit muni aðstoða Dick Advocaat landsliðsþjálfara Hollendinga á EM í Portúgal í sumar áður en að hann tekur við Feyenoord en Gullit var sjálfur fyrirliði Hollendinga þegar að þeir unnu mótið 1988.
Kappinn mun taka við stjórnun Feyenoord af Bert van Marwijk sem mun hætt hjá liðinu í sumar. Aðstoðarþjálfari Gullits verður Mark Wotte sem nú stýrir Willem II.

Feyenoord er sem stendur í fjórða sæti í hollensku deildinni, níu stigum á eftir toppliði Ajax.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.