Fotbolti.net
05.01.05 - 12:37
Magnús Már Einarsson

Lizarazu aftur til Bayern Muncen (Staðfest)

Lizarazu aftur til Bayern Muncen (Staðfest)
Canon
Vinstri bakvörðurinn Bixente Lizarazu hefur gengið óvænt aftur til liðs við Bayern Munchen. Þessi 35 ára gamli Frakki fór frá Bayern síðasta sumar til Marseille. Hann hefur hinsvegar lítið sem ekkert fengið að spila hjá Marseille eftir að Philippe Troussier tók við þjálfun liðsins.
Lizarazu vildi ekki leggja skónna á hilluna og ákvað því að taka tilboði Bayern Munchen um að koma og spila með liðinu út leiktíðina.

Bayern Munchen hefur verið að leita af vinstri bakverði og ætlaði liðið að fá Philip Lahm í sumar og leysa stöðuna en þá klárar hann tveggja ára lánssamning sinn hjá Stuttgart. Því er Bayern Munchen búið að fá Lizarazu til að koma og klára þetta tímabil með liðinu en hann kemur frítt frá Marseille.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.