Karen María er miðjumaður sem uppalin er hjá KA. Hún hefur leikið með Þór/KA frá því hún kom upp í meistaraflokk ásamt því að hún lék með Hömrunum hluta af sumrinu 2018.
Í fyrra skoraði hún þrjú mörk í leikjunum fimmtán þegar Þór/KA endaði í 7. sæti Pepsi Max-deildarinnar. Karen á að baki þrettán unglingalandsleiki og var á dögunum valin í æfingahóp A-landsliðsins. Í dag sýnir hún á sér hina hliðina.
Í fyrra skoraði hún þrjú mörk í leikjunum fimmtán þegar Þór/KA endaði í 7. sæti Pepsi Max-deildarinnar. Karen á að baki þrettán unglingalandsleiki og var á dögunum valin í æfingahóp A-landsliðsins. Í dag sýnir hún á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Karen María Sigurgeirsdóttir
Gælunafn: Kæja Mæja
Aldur: 19 ára
Hjúskaparstaða: er í sambandi
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 2017 í pepsí
Uppáhalds drykkur: Vatn
Uppáhalds matsölustaður: rub
Hvernig bíl áttu: hvítan Subaro
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Lucifer
Uppáhalds tónlistarmaður: Bríet
Uppáhalds hlaðvarp: Fm95blö
Fyndnasti Íslendingurinn: Steindi
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Jarðaber, daim kurl og karamellu ídýfu
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Godan dag. Sending nr. 2102058501 er tilbuin til afhendingar a Eimskip/Flytjandi Akureyri. Opid man-fim
08-16 og 08-15 föstudaga. Simi: 525-7830. ATH thad er grimuskyldin hja okkur
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Er opin fyrir öllu
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Pernille Harder
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Donni Sigurðsson
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Áslaugu Mundu
Sætasti sigurinn: Bikarmeistarar í 2. flokki 2017
Mestu vonbrigðin: Falla með Hömrunum 2018
Uppáhalds lið í enska: Arsenal
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Evu Rut
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Maria Catharina
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Birgir Ómar
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Hulda Karen
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Messi
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Steingerður er mesti höstlerinn
Uppáhalds staður á Íslandi: Akureyri
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Sumarið 2017 kom ég inná á 89. mínútu og tryggði Þór/KA sigur í leik á móti FH sem skipti miklu máli
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Banani fyrir leik
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Handbolta og skíðagöngu
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Eðlisfræði
Vandræðalegasta augnablik: var að taka horn í mígandi rigningu og rann á rassinn þegar ég var að sparka í boltann
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Huldu Karen, Snædís Ósk og Margréti Árna
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: æfði gönguskíði fram að 14 ára aldri og var mjög efnileg
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Snædís Ósk, vissi ekki að hún væri svona steikt
Hverju laugstu síðast: Laug því síðast að ég myndi biðja að heilsa, gerði það ekki
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Upphitun
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: myndi spyrja guð hvort það væri líf eftir dauðann
Athugasemdir