Þriðja umferðin í Bestu deild kvenna fer af stað í kvöld og við fengum Ástu Eir Árnadóttur, fyrrum fyrirliða Breiðabliks, til að spá í leikina sem eru framundan. Hennar konur sitja á toppnum með fullt hús stiga ásamt ÍBV þegar tveir leikir eru búnir.
Fram 1 - 3 Þróttur R. (19:15 í kvöld)
Sigur Þróttara á FH í síðustu umferð gaf þeim mikið og þær munu hrökkva í gang núna og spila betri sóknarleik. Kayla Rollins setur tvö mörk og Unnur Dóra eitt. Fram klórar í bakkann og minnkar muninn undir lok leiks með marki frá Taylor Hamlett. Endar 1-3 fyrir Þrótti.
Valur 0 - 2 ÍBV (16:30 á morgun)
Áhugaverðasti leikur umferðarinnar. ÍBV hefur skorar mest í deildinni, og þær halda því áfram. Varnarlína Vals mun ströggla við sterka sóknarmenn ÍBV. Leikurinn endar 0-2 fyrir ÍBV. Olga skorar og leggur svo upp á vinkonu sína Allison Lowrey.
Þór/KA 1 - 0 Stjarnan (17:00 á morgun)
Þetta verður lokaður leikur, lítið um færi. Þór/KA stelur sigri í lok leiks og nær í sinn fyrsta sigur. Erin Flurey skorar og tryggir 1-0 sigur.
Víkingur R. 0 - 3 Breiðablik (19:15 á morgun)
Þessi leikur er alvöru próf fyrir Víkíngsliðið. Blikaliðið er búið að byrja deildina mjög solid, engar flugeldasýningar en þær kunna að vinna leiki. Ég held að Breiðablik sé of stór biti fyrir Víking og þær klára þennan leik örugglega 0-3. Ása og Líf skora fyrstu tvö svo fær Bryndís Arna aðeins fleiri mínútur í þessum leik og setur eitt og opnar markareikninginn.
FH 4 - 2 Grindavík/Njarðvík (19:15 á morgun)
Ef FH ætlar að vera í toppbaráttu þá verða þær að vinna þennan leik, það er bara þannig. Þetta verður opinn og skemmtilegur leikur. Grindavík/Njarðvík halda áfram að vera the entertainers en örlítið reynsluleysi verður þeim að falli í leiknum og leikurinn endar með 4-2 sigri FH. Systurnar skora sitthvort markið og Berglind Freyja setur tvö fyrir FH. Lily Farkas og Natasha skora fyrir Gri/Nja.
Fyrri spámenn:
Katrín Ásbjörns (3 réttir)
Arna Eiríks (2 réttir)



