Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 12:00
Elvar Geir Magnússon
Segir draum hafa ræst þó hann hafi endað á sjúkrahúsi
Jesse Derry fór af velli á börum.
Jesse Derry fór af velli á börum.
Mynd: EPA
Jesse Derry, 18 ára leikmaður Chelsea, segir að draumur hafi ræst þegar hann lék sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir aðalliðið gegn Nottingham Forest í gær.

Í lok fyrri hálfleiks varð hann fyrir þungu höfuðhöggi í samstuði og fékk súrefni áður en hann var borinn af velli á börum eftir langt stopp. Hann var fluttur á sjúkrahús í skoðun.

„Draumur rættist þegar ég byrjaði minn fyrsta úrvalsdeildarleik á Stamford Bridge," skrifaði Derry á samfélagsmiðla.

„Ég vil þakka öllu læknaliði Chelsea, öllum á St Mary's sjúkrahúsinu, liðsfélögum mínum, öllum stuðningsmönnum fyrir frábæran stuðning. Ég get ekki beðið eftir að spila aftur fyrir framan ykkur öll sem fyrst."

Jesse Derry er sonur Shaun Derry, fyrrum miðjumanns Leeds og Crystal Palace. Þetta var hans fyrsti byrjunarliðsleikur en hann hafði tvisvar komið inn af bekknum í FA-bikarnum.

Chelsea tapaði leiknum 1-3 en það hefur gengið afskaplega illa hjá liðinu að undanförnu.



Slapp
banner
banner
banner