Fotbolti.net
05.06.21 - 19:01
Victor Pálsson

Man Utd gæti grætt vel á Zaha

Man Utd gæti grætt vel á Zaha
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United gæti grætt háa upphæð í sumar ef Wilfried Zaha verður seldur frá Crystal Palace.
Zaha hefur tilkynnt Palace það að hann vilji fara en vængmaðurinn er talinn besti leikmaður enska liðsins.

Félög á Englandi og á Ítalíu hafa sýnt Zaha áhuga en hann á enn tvö ár eftir af samningi sínum á Selhurst Park.

Zaha er fyrrum leikmaður Man Utd og fá þeir rauðklæddu 25 prósent af næstu sölu leikmannsins.

Það gæti verið nokkuð há upphæð en ólíklegt er að Palace selji Zaha fyrir minna en 25 milljónir punda.

Zaha var keyptur til Man Utd árið 2013 en var svo seldur aftur til Palace tveimur árum seinna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.