Alli Jói: Léttir, doði og alsæla

Alli Jói var að vonum ánægður eftir 0-2 sigurinn í kvöld sem tryggði veru Þórs/KA í deild þeirra bestu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alli Jói var að vonum ánægður eftir 0-2 sigurinn í kvöld sem tryggði veru Þórs/KA í deild þeirra bestu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þórs/KA, átti erfitt með að lýsa tilfinningunum eftir 2-0 sigur á Víkingi í kvöld. Sigurinn tryggði liðinu áframhaldandi veru í Bestu deild kvenna.
„Þær eru út um allt. Léttir, doði, allsæla og á örugglega eftir að fara í hringi. Þetta er gríðarlega sætt að hafa náð að klára þetta fyrir rest,“ sagði Aðalsteinn Jóhann eða Alli Jói eins og hann er jafnan kallaður í viðtali við Fótbolta.net.
Hann sagði aldrei hafa komið til greina að treysta á hagstæð úrslit í leik Fram og Vals. Þór/KA hefði mætt í Víkina með sigur að markmiði og breytt byrjunarliðinu með það í huga.
„Við förum að sjálfsögðu hingað til að vinna. Það var aldrei treyst á einhver úrslit. Við töldum mikilvægt að byrja af krafti og sækja fyrsta markið, sem lét þó bíða eftir sér.“
Í undirbúningnum hefði einnig verið lögð áhersla á að leikmenn hlökkuðu til verkefnisins, þótt mikið væri undir.
„Það er ástæða fyrir því að maður er í fótbolta. Við fáum ekki alltaf að spila leiki sem skipta gríðarlega miklu máli og þessi leikur skipti gríðarlega miklu máli fyrir alla. Ég er fyrst og fremst gríðarlega ánægður með stelpurnar. Þær eiga þetta skilið.“
Alli Jói hafði óskað eftir því að fá aðeins upplýsingar um gang mála í hinum leiknum þegar hann sjálfur spurði. Það gerði hann í kringum 65.-70. mínútu, þegar Valur var komið yfir enn markalaust var í Víkinni og bæði lið þurftu að skora.
Hann vildi ekki taka áhættu of snemma og María Dögg Jóhannesdóttir kom Þór/KA svo yfir.
„Sem betur fer kom þetta mark hjá Maríu. Ekkert smáræðis baráttumark sem hún skorar. Það sýnir bara hvað við vildum þetta mikið.“
Þrátt fyrir gleðina vildi Alli Jói einnig lýsa samúð með liðunum sem féllu. Hann sagði bæði leikmannahópa og þjálfarateymi þeirra eiga fullt erindi í efstu deild og kom jafnframt inn á umræðuna um fjölgun liða.
„Ég finn rosalega til með liðunum sem fara niður. Mér finnst leikmannahóparnir, þjálfarateymin og þjálfararnir klárlega á efstu deildarstigi. Ég veit að þetta eru lið sem stoppa ekki lengi þarna niðri.“
„Verðugir andstæðingar, sem gerir þetta kannski ennþá sætara.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.
