Reynir S. 6 - 3 Augnablik
1-0 Ingólfur Sigurðsson ('15 )
2-0 Jordan Smylie ('17 )
3-0 Sigurður Orri Ingimarsson ('47 )
3-1 Brynjar Óli Bjarnason ('54 )
4-1 Sigurður Orri Ingimarsson ('55 )
5-1 Jordan Smylie ('61 )
6-1 Sævar Orri Valgeirsson ('70 )
6-2 Maríus Warén ('76 )
6-3 Maríus Warén ('82 )
1-0 Ingólfur Sigurðsson ('15 )
2-0 Jordan Smylie ('17 )
3-0 Sigurður Orri Ingimarsson ('47 )
3-1 Brynjar Óli Bjarnason ('54 )
4-1 Sigurður Orri Ingimarsson ('55 )
5-1 Jordan Smylie ('61 )
6-1 Sævar Orri Valgeirsson ('70 )
6-2 Maríus Warén ('76 )
6-3 Maríus Warén ('82 )
Reynir Sandgerði tók á móti Augnabliki í eina leik kvöldsins í 3. deild og úr varð mikil markaveisla.
Ingólfur Sigurðsson og Jordan Smylie komu Sandgerðingum í tveggja marka forystu þegar þeir skoruðu með stuttu millibili og leiddu heimamenn í leikhlé.
Sigurður Orri Ingimarsson bætti þriðja markinu við í upphafi síðari hálfleiks, áður en Brynjar Óli Bjarnason minnkaði muninn fyrir gestina.
Það kom ekki að sök því Sigurður Orri skoraði aftur skömmu síðar áður en Jordan og Sævar Orri Valgeirsson gerðu út um viðureignina fyrir Reyni.
Maríus Warén minnkaði muninn fyrir Augnablik með tvennu á lokakaflanum svo lokatölur urðu 6-3.
Reynir fer upp í annað sæti deildarinnar með sigrinum þar sem liðið situr með 12 stig eftir 6 umferðir. Augnablik er með 8 stig.
Reynir heimsækir KH í næstu umferð á meðan Augnablik tekur á móti KV.




