Jóhann Birnir: Við erum að missa þrjá

Jóhann Birnir Guðmundsson, þjálfari ÍR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Birnir Guðmundsson, þjálfari ÍR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Gríðarlega ánægður með effortið og framlagið hjá strákunum og náttúrulega sigurinn,“ sagði Jóhann Birnir Guðmundsson, þjálfari ÍR, eftir verðskuldaðan 2-0 sigur á Fylki í Breiðholtinu í dag.
Fylkismenn koma inn í þennan leik eftir svekkjandi tap í vítaspyrnukeppni í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Var það eitthvað sem ÍR voru með á bak við eyrað, að þeir væru brothættir og þeir gætu keyrt á þá?
„Nei, nei. Auðvitað hefur sá leikur eitthvað tekið á hjá þeim, þeir náttúrulega fóru í framlengingu en við erum náttúrulega bara að hugsa um okkur sjálfa og við höfum alveg nóg með okkur að þurfa ekki að vera að hugsa um andstæðinginn.“
ÍR hafa nú haldið hreinu tvo leiki í röð en höfðu fram að því ekki haldið hreinu í 28 leiki í röð. Aðspurður hvort það sé eitthvað sérstakt sem þeir hafi breytt segir hann.
„Já það er það sem við erum búnir að vera að vinna að undanfarið að gera aðeins betur varnarlega. Mér finnst við ekki vera að falla aftur eða neitt þannig við erum bara búnir að setja meiri fókus á það að menn séu með fókus, þegar við erum ekki með boltann, að verjast.“
Félagaskiptaglugginn er opinn, sér Jóhann fyrir sér einhverjar frekari hreyfingar á hópnum?
„Við erum að missa þrjá stráka í skóla núna þannig að við hugsanlega fáum eitthvað inn en við erum bara með mjög fínan hóp og marga stráka sem komu ekki inn á í dag sem gætu hæglega verið að byrja.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum.




