Fotbolti.net
25.07.26 - 16:10
Brynjar Ingi Erluson

Kjartan opnaði markareikninginn í Skotlandi - Júlíus sá rautt í tapi

Kjartan Már skoraði fyrir Aberdeen

Kjartan Már skoraði fyrir Aberdeen

Canon

Mynd: Aberdeen

Kjartan Már Kjartansson skoraði sitt fyrsta mark fyrir skoska félagið Aberdeen er liðið vann öruggan 3-0 sigur á Kelty Hearts í lokaumferð í riðlakeppni deildabikarsins í dag.
Kjartan gekk til liðs við Aberdeen á síðasta ári en fékk fá tækifæri til að sanna sig á sínu fyrsta tímabili. Nú virðist ljóst að honum sé ætlað stærra hlutverk í liðinu.

Hann fékk sinn fyrsta byrjunarliðsleik á tímabilinu gegn Kelty Hearts í skoska deildabikarnum í dag og þakkaði traustið með marki. Kjartan kom Aberdeen í 2-0 á 27. mínútu þegar hann skoraði innan úr vítateignum eftir sendingu frá Kevin Nisbet.

Kjartan fór af velli á 60. mínútu og getur vel við unað eftir frammistöðuna. Aberdeen vann alla fjóra leiki sína í riðlinum og tryggði sér sæti í sextán liða úrslitum með fullt hús stiga.

Júlíus Már Júlíusson, varnarmaður Kristiansund, fékk að líta rauða spjaldið í 2-1 tapi gegn Start í norsku úrvalsdeildinni.

Júlíus var maður leiksins í síðasta leik og hefur verið öflugur í vörn Kristiansund. Hann fékk hins vegar tvö gul spjöld í dag og var rekinn af velli þegar tuttugu mínútur voru eftir.

Hrannar Snær Magnússon kom inn á sem varamaður á 81. mínútu. Kristiansund er í næstneðsta sæti deildarinnar með tólf stig eftir fjórtán leiki.

Logi Hrafn Róbertsson kom af bekknum hjá Värnamo sem gerði markalaust jafntefli við Brage í sænsku B-deildinni. Þetta var fyrsta stig Värnamo síðan í maí en liðið er í næstneðsta sæti með ellefu stig.

Logi Tómasson var í byrjunarliði Samsunspor sem gerði markalaust jafntefli við belgíska félagið RAAL La Louviere í æfingaleik. Willum Þór Willumsson kom einnig við sögu hjá NEC Nijmegen sem tapaði 1-0 fyrir Elversberg.

Brynjólfur Andersen sat á bekknum hjá Groningen í markalausu jafntefli gegn gríska liðinu Volos en kom inn á í síðari hálfleik.

Alfons Sampsted og Stefán Ingi Sigurðarson voru báðir í byrjunarliði Go Ahead Eagles sem vann 4-0 stórsigur á grísku bikarmeisturunum OFI Crete.

Albert Guðmundsson byrjaði síðan hjá Fiorentina sem tapaði 3-2 fyrir QPR á Loftus Road.
Júlíus Mar sá rautt í liði Kristiansund

Júlíus Mar sá rautt í liði Kristiansund

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.