Fotbolti.net
05.06.26 - 14:18
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net

Haugland yfirgefur Þór óvænt - Kemur Aron Einar í glugganum?

Sebastian Haugland er farinn heim.

Sebastian Haugland er farinn heim.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Norski framherjinn Sebastian Haugland hefur yfirgefið Þór Akureyri af persónulegum ástæðum.

Fram kemur á Vísi að fjölskylda hans hafi orðið fyrir áfalli á dögunum og Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, býst ekki við Haugland til baka.

Þórsarar hafa ekki unnið leik síðan Haugland tryggði liðinu sigur á Fram í þriðju umferð með glæsilegu marki. Hann hefur að öðru leyti ekki staðið undir væntingum. Þór er stigi fyrir ofan fallsæti í Bestu deildinni.
Greko í tveggja leikja bann - Sjáðu atvikið
TENGT EFNI

Greko í tveggja leikja bann - Sjáðu atvikið

Eins og fjallað hefur verið um á Vísi hafa höggin verið að dynja á Þór.

Atli Sigurjónsson er tognaður aftan í læri og spilar ekki á næstunni, Christian Greko Jakobsen var dæmdur í tveggja leikja bann á síðasta agafundi og þá ökklabrotnaði lykilmaðurinn Isaac Atanga í leiknum gegn KA og spilar ekki meira á tímabilinu.

Heimkoma Arons í sumarglugganum?
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net var talað um að auknar líkur séu á því að Aron Einar Gunnarsson komi heim í Þór í glugganum.

„Þættinum barst bréf. Það er víst mjög líklegt og sögurnar að verða háværari og háværari um að Aron Einar Gunnarsson sé að fara að koma heim í sumarglugganum," segir Elvar Geir Magnússon. „Hann myndi koma til að lyfta öllu liðinu upp, þeir þurfa að spýta í lófa."

Tómas Þór Þórðarson veltir því fyrir sér hvort Aron, sem er 37 ára, myndi ekki koma sem miðvörður í Þórsliðið.

„Þeir tapa hverjum leiknum á fætur öðrum og eru samhliða FH samkvæmt tölfræðilega lélegasta lið deildarinnar. Þeir hafa ekki náð að nýta góðu kaflana sína og eru lekir til baka. Heimkoma Arons Einars yrði að vera sú lyftistöng sem maður myndi halda að hún væri fyrir Þorpið," segir Tómas Þór.

Þór á feikilega mikilvæga leiki við ÍBV og FH, liðin í fallsætunum, eftir að landsleikjahléinu lýkur.
Er Aron Einar að koma heim?

Er Aron Einar að koma heim?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útvarpsþátturinn - Arnór Ingvi og HM að hefjast

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.14+3940
2KR15+1732
3Fram14+1230
4Breiðablik14+825
5Valur15-519
6Keflavík14-716
7Stjarnan14-315
8ÍBV14-715
9ÍA14-915
10KA14-813
11FH14-1111
12Þór14-268
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.