Gefið hefur verið út hvaða leikmenn eru tilnefndir sem leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni valinn af leikmönnum, PFA.
Meðal tilnefndu er Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, sem var valinn bestur af íþróttafréttamönnum en það val gefur vísbendingar um hver sé líklegastur til að hljóta þessi verðlaun.
Bruno átti 21 stoðsendingu, sem er met, og hjálpaði United að enda í þriðja sæti.

Þrír leikmenn frá Englandsmeisturum Arsenal eru tilnefndir; það eru markvörðurinn David Raya, miðvörðurinn Gabriel og miðjumaðurinn Declan Rice.
Sóknarmaðurinn Erling Haaland hjá Manchester City er tilnefndur en hann tók gullskóinn með 27 mörk. Liðsfélagi hans, Rayan Cherki, fær einnig tilnefningu eftir frábært fyrsta tímabil í ensku úrvalsdeildinni.
Besti ungi leikmaðurinn
Cherki er einnig tilnefndur sem besti ungi leikmaðurinn og liðsfélagi hans Nico O'Reilly er einnig tilnefndur. O'Reilly var valinn besti ungi leikmaðurinn af ensku úrvalsdeildinni.
Kobbie Mainoo hjá Manchester United, Eli Junior Kroupi hjá Bournemouth, Max Dowman hjá Liverpool og Rio Ngumoha hjá Liverpool eru einnig tilnefndir í þessum flokki.
Verðlaunin verða tilkynnt þriðjudaginn 25. ágúst við hátíðlega athöfn í Manchester.