Fotbolti.net
26.07.26 - 12:56
Brynjar Ingi Erluson

Meistararnir að fá efnilegan leikmann frá Cardiff

Meistararnir að fá efnilegan leikmann frá Cardiff
Canon

Mynd: EPA

Englandsmeistarar Arsenal hafa náð samkomulagi við Cardiff um kaup á velska miðjumanninum Axel Donczew.
Donczew er 16 ára gamall og varð yngsti leikmaðurinn í sögu Cardiff til að spila í enska deildabikarnum þegar hann kom við sögu í keppninni í október síðastliðnum.

Hann er nú á leið til Arsenal og mun skrifa undir samning við félagið í næstu viku. Donczew hefur þegar staðist læknisskoðun hjá Lundúnaliðinu.

Hann verður annað ungstirnið sem Arsenal fær til sín á skömmum tíma á eftir Elijah Upson, sem kom frá Tottenham.

Upson er 18 ára gamall og sonur fyrrverandi enska landsliðsmannsins Matthew Upson, sem lék meðal annars með Arsenal, West Ham og Birmingham á sínum ferli.

Arsenal horfir greinilega til framtíðar með þessum kaupum. Báðir koma þeir inn í unglingastarf félagsins með það langtímamarkmið að vinna sér sæti í aðalliðinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.