05.07.04 - 12:11
Hafliði Breiðfjörð
Ferdinand til Bolton (Staðfest)




Les Ferdinand skrifaði í morgun undir samning við Bolton og mun leika með þeim næstu leiktíð. Samningurinn var til eins árs en Ferdinand sem er 37 ára gamall var orðinn samningslaus frá Leicester í lok síðustu leiktíðar. Hann er önnur kaup Bolton í sumar á eftir Michael Bridges frá Leeds United. Sam Allardyce stjóri Bolton sagði í morgun: ,,Les Ferdinand er markaskorari. Hann skoraði 12 mörk í 28 leikjum á síðustu leiktíð í liði sem gekk illa. Hann náði tveimur gegn okkur ef ég man rétt og hann verður mikilvægur hluti af hópnum."
