05.07.04 - 14:36
Magnús Már Einarsson
Ögmundur markvörður Víkings til Vals (Staðfest)

Mynd: vikingur.net

Mynd: vikingur.net
Ögmundur Viðar Rúnarsson varamarkvörður Víkings R. er á leið til fyrstu deildarlið Vals en þetta staðfesti hann við fréttaritara Fótbolta.net í dag. Ögmundur sem að er 27 ára hefur verið í Víking seinustu sjö ár eftir dvöl hjá KR og KVA en kappinn ólst upp hjá Val. Hann var aðalmarkvörður Víkings á síðasta tímabili og lengi vel á undirbúningstímabilinu þar til að Slóvakinn, Martin Trancik kom til Víkings.
Mikla athygli vekur að Ögmundur var ekki samningsbundinn Víkingi og því þarf Valur ekki að greiða krónu fyrir kappann nema þá félagaskiptagjaldið sem að er 1500 krónur íslenskar.
Ögmundur mun berjast um markmannsstöðuna hjá Val við Kristinn Geir Guðmundsson en aðalmarkvörður liðsins Ólafur Þór Gunnarsson meiddist þegar á æfingu í seinasta mánuði þegar að hann var að leika sér sem útileikmaður.