28.07.26 - 16:15
Elvar Geir Magnússon
City heldur áfram að framlengja við menn - Gvardiol búinn að krota undir

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Króatíski varnarmaðurinn Josko Gvardiol hefur skrifað undir nýjan samning við Manchester City. Nýr samningur hans er til 2031 og með klásúlu um ár til viðbótar.
Gvardiol er 24 ára og fetar í fótspor Phil Foden og Abdukodir Khusanov sem báðir framlengdu nýlega við City.
Gvardiol er 24 ára og fetar í fótspor Phil Foden og Abdukodir Khusanov sem báðir framlengdu nýlega við City.

TENGT EFNI
Khusanov framlengir við Man City (Staðfest)
„Ég er spenntur fyrir því að spila hér í mörg ár til viðbótar. Stuðningsmenn City hafa verið mér frábærir frá fyrsta degi og félagið gerir allt fyrir leikmenn sína. Þetta er besta félag í heimi til að vera hjá. Ég hef fundið svo mikla ást og virðingu þessi þrjú ár sem ég hef verið hér og tek því ekki sem sjálfsögðum hlut," segir Gvardiol.
Gvardiol var orðaður við Real Madrid og Bayern München í sumar en segir að um leið og City hafi sagst vilja framlengja samning við hann hafi það verið það sem hann vildi.
Gvardiol og Man City eru að hefja nýjan kafla án Pep Guardiola, þar sem Enzo Maresca er nú tekinn við stjórnartaumunum.