28.07.26 - 16:01
Fótbolti.net
ReyCup 2026 lauk með glæsibrag á Laugardalsvelli

Mynd: ReyCup

Mynd: ReyCup

Mynd: ReyCup
Síðasti keppnisdagur ReyCup 2026 verður seint gleymdur þegar úrslitaleikir mótsins fóru fram á Laugardalsvelli, þjóðarleikvangi Íslands.
Í sannkölluðu draumaveðri var umgjörðin eins og best verður á kosið þar sem leikmenn, þjálfarar, fjölskyldur og stuðningsfólk sköpuðu einstaka stemningu. ReyCup endaði þannig fullkomnlega. Frábær fótbolti, vinátta og ógleymanlegar minningar.

Í úrslitum 4. flokks kvenna sýndi FC Bayern München styrk sinn með sannfærandi 3–0 sigri á Þrótti. Salome Carvalho-Savarese var valin maður leiksins eftir frábæra frammistöðu.
Ascent Soccer stóð uppi sem sigurvegari í 4. flokki karla megin eftir 2–0 sigur gegn Selfossi. Howard Zimba Magawa var kjörinn maður leiksins.
Í úrslitaleik 3. flokks kvenna var það aftur Bayern München sem fagnaði titli eftir glæsilegan 4–0 sigur á Ascent Soccer. Theresa Heindlhlaut viðurkenningu sem maður leiksins.
Spennan var mest í úrslitum 3. flokks karla þar sem ÍA hafði betur gegn Val með 1–0 sigri í hörkuleik. Styrmir Gíslason var valinn maður leiksins fyrir frammistöðu sína og leiddi lið sitt til ReyCup-titils.
ReyCup þakkar öllum þátttakendum, sjálfboðaliðum, þjálfurum, dómurum, samstarfsaðilum og stuðningsfólki fyrir ógleymanlega viku. Við óskum öllum verðskuldað til hamingju með frábæran árangur!