28.07.26 - 16:30
Kári Snorrason
Missir af úrslitaleiknum gegn uppeldisfélaginu

Farinn frá Breiðabliki til Króatíu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á að baki 40 meistaraflokksleiki fyrir Aftureldingu.

Mynd: Raggi Óla

Farinn frá Breiðabliki til Króatíu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Gauti Jónsson gekk um helgina í raðir króatíska félagsins Slaven Belupo frá Breiðabliki.
Hann var á sínu þriðja tímabili með Breiðabliki eftir að hafa komið frá Fylki fyrir tímabilið 2024, en Arnór er uppalinn hjá Aftureldingu.
Með vistaskiptunum til Króatíu missir Arnór af tækifærinu til að mæta uppeldisfélagi sínu þegar Breiðablik og Afturelding eigast við í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á Laugardalsvelli 11. september.

TENGT EFNI
Óþarfi að heyra í hinum Króatíuförunum - „Hjartað og hugurinn hafa alltaf leitað út“
„Það hefði verið mjög gaman að taka þátt í þessum leik. Það verður að bíða betri tíma. Það kemur vonandi í framtíðinni, eftir þó nokkur mörg ár,“ sagði Arnór í samtali við Fótbolta.net í gærdag.
Hann segir Breiðablik hafa stefnt að því að vinna Mjólkurbikarinn á tímabilinu. „Við vildum vinna þennan bikar og keppast síðan um titilinn. Við erum komnir ansi langt með bikarinn en stærsta og mikilvægasta prófið er eftir. Ég vona bara að þeir klári það,“ sagði Arnór að lokum.