Fotbolti.net
28.07.26 - 16:48
Ívar Björgvinsson

Karl Friðleifur: Tókum lærdóm frá þeim leik

Auglýsing
Karl Friðleifur hefur verið lykilmaður í liði Víkings.

Karl Friðleifur hefur verið lykilmaður í liði Víkings.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur mætir ísraelska liðinu Hapoel B'eer Sheva í annarri umferð forkeppni Meistaradeildarinnar á morgun. Víkingur vann fyrri leikinn 2-1 í Fossvogi en leikurinn á miðvikudag verður í Szombathely í Ungverjalandi vegna aðstæðna í Ísrael. Fótbolti.net rer að sjálfsögðu á staðnum og ræddi við Karl Friðleif Gunnarsson á liðshóteli Víkings í Ungverjalandi fyrr í dag.

„Ferðalagið var langt og strangt, þetta var heill dagur sem fór í að ferðast, tvö flug og síðan þriggja tíma rútuferð. Aðstðæðurnar hérna eru flottar og ekkert til að kvarta yfir hérna, við erum úti á landi í Ungverjalandi og hér er mikil ró.''

Það er um 30 stiga hiti og spáð rúmlega því þegar leikurinn fer fram annað kvöld. „Það er mjög heitt, við æfðum í gær en ég fann ekkert mikið fyrir því en það er heitara í dag. Við sjáum hvernig þetta verður á morgun.''

Víkingar eru mættir aftur til Ungverjalands eftir að hafa mætt Györ aðeins austar í landinu fyrir tveimur vikum síðan.

„Stemningin er frekar svipuð og síðast þó að tilefnið sé aðeins stærra, það skiptir litlu máli hvort þetta sé 1. eða 2. umferðin. Við finnum ekkert fyrir einhverri aukinni pressu og erum ekkert að fara að breyta um game plan.''

Sanngjörn niðurstaða í fyrri leiknum

„Mér fannst þetta sanngjörn niðurstaða, mér finnst þetta besta lið sem við erum búnir að spila á móti í sumar, þeir eru með gríðarlega mikil gæði og mikil einstaklingsgæði í leikmönnunum. En við spiluðum fáránlega vel og mér fannst, miðað við tölurnar, þetta vera bara sanngjörn niðurstaða.''

Leikmannahópur Hapoel er metinn á mun meiri peninga heldur en hópur Víkings og liðið miklu stærra en samt sem áður leiða Víkingar einvígið komandi inn í seinni leikinn.

„Það gefur liðinu sjálfstraust, þessar blessuðu tölur gefa ekki alveg rétta mynd af öllu en mér finnst, gæðalega séð, liðin vera á mjög svipuðum stað og þetta verður bara hörkuleikur á morgun. Þetta getur dottið báðum megin en þetta verður spennandi og það verður gaman að spila þennan leik á morgun.''

Búast við svipuðum leik á morgun

„Ég held að þetta verði svipaður leikur á morgun, en örugglega aðeins erfiðari, grasleikir eru náttúrlega allt öðruvísi og mér persónulega finnst skemmtilegra að vera á grasi. Erfiðara heilt yfir, meira challenge en sama uppi á teningnum.

Víkingar voru í nánast sömu stöðu fyrir tveimur vikum þegar liðið fór með 1-0 forystu út til Ungverjalands þar sem liðið náði í 2-2 jafntefli í seinni leiknum og fór þar með áfram. Fyrri hálfleikurinn var ekki góður og leit liðið ekki vel út en náði að snúa málunum sér í hag í þeim síðari hálfleik.

„Við klárlega tókum lærdóm frá þeim leik og ef við ætlum að spila aftur svoleiðis, eins og í fyrri hálfleiknum, þá held ég að við séum bara dottnir út. Við þurfum að halda fókus í 90 mínútur á móti þessu liði af því að þeir eru betri, eru með meiri gæði og þeir refsa meira fyrir það að spila ekki sinn besta leik. Það er klárlega eitthvað sem við þurfum að taka lærdóm af og þurfum að vera on it í 90 mínútur.''

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.