Bestur í júlí - Átti svo sannarlega skilið að fá þennan lestur frá Óskari

Besti leikmaður júlímánaðar í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Við erum að ráðast á þennan titil'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron var tekinn af velli eftir um 70 mínútur gegn ÍBV og lét Arnór Ingva hafa fyrirliðabandið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er kannski erfiðara að loka á mig og reyna að taka mig úr leiknum þegar allir í kringum mig eru að spila vel.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég átti svo sannarlega skilið að fá þennan lestur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aukaspyrnumarki gegn ÍBV fagnað.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR hefur skorað tíu mörk í síðustu tveimur leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sagði við Aron að fótbolti væri liðsíþrótt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besti leikmaður júlímánaðar í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR fékk sjö stig af níu mögulegum í mánuðinum og Aron skoraði fimm mörk í leikjunum þremur og lagði upp tvö. Aron ræddi við Fótbolta.net.

Aron Sig yfirlýsingaglaður: Ég slæ markametið
„Ég er þokkalega sáttur með mánuðinn. Kannski fyrir utan þennan Þórsleik, ætli þetta hafi ekki verið biluðustu 15 mínútur sem ég hef upplifað á fótboltavelli. En eftir það vorum við mjög góðir og vorum óheppnir að vinna þann leik ekki, og við erum búnir að svara vel fyrir þann leik í síðustu tveimur leikjum," segir Aron.
Vill spila í Evrópu á sama tíma að ári
Mánuðurinn hefur verið nokkuð rólegur hjá KR-ingum sem spiluðu einungis þrjá leiki í júlí. KR spilaði fyrr á tímabilinu á móti Val sem var hluti af liðinni umferð en var flýtt vegna þátttöku Vals í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Eru þrír leikir ekki full lítið?
„Jú, það er full lítið að spila þrjá leiki á einum mánuði og sérstaklega þegar við erum að spila vel, þá viljum við fá leiki aftur sem fyrst en svona er þetta!"
Þið KR-ingar viljið væntanlega vera í fleiri leikjum á þessum tímapunkti á næsta tímabili?
„jú, við viljum klárlega vera að spila Evrópuleiki á þessum tíma á næsta ári, ekki spurning."
Aron nýtti fríið sem KR-ingar fengu til að fara með fjölskyldunni norður til Akureyrar í sumarbústað og hlóð þar batteríin.
Snýst ekki um mig heldur allt liðið
Aron hefur átt mjög gott tímabil í ár, hefur skorað sextán mörk og lagt upp sjö. Á síðasta tímabili skoraði hann fjórtán og lagði upp fimm. Er hlutverkið í ár eitthvað öðruvísi en í fyrra?
„Ég var færður meira miðsvæðis á þessu tímabili og fæ að vera pínu frjáls að finna mér svæði og komast í boltann. En þetta snýst ekki um mig heldur allt liðið, þegar liðið er að tikka þá tikka ég. Flest allir sem spila framarlega hjá okkur eru að skila reglulega mörkum og stoðsendingum þannig það er kannski erfiðara að loka á mig og reyna að taka mig úr leiknum þegar allir í kringum mig eru að spila vel."
Óskar lét Aron vita að fótbolti væri liðsíþrótt
Eftir leik KR og ÍBV var Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, spurður út í þá Aron Sigurðarson og Arnór Ingva Traustason. Óskar sagði eftirfarandi:
„Tveir mjög góðir leikmenn, engin spurning. Mikilvægir hlekkir í liðinu. Get samt alveg ljóstrað því upp hér að ég sagði við Aron Sig í hálfleik að þetta væri liðsíþrótt. Á köflum í fyrri hálfleik snerist þetta um að menn væru að gera hlutina upp á eigin spýtur, taka ótímabær skot og þvinga hlutina. Að því sögðu þá eru þetta tveir framúrskarandi góðir leikmenn," er haft eftir Óskari á Vísi.
Aron var tekinn af velli í seinni hálfleiknum gegn ÍBV og Aron sagði sjálfur eftirfarandi í viðtali eftir leikinn:
„Að sjálfsögðu langar mig að vera lengur inn á, skora fleiri mörk og leggja upp fleiri mörk."
„Ég er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið. Þess vegna er maður kannski extra súr að vera tekinn út af í dag en í mínum haus er ég með þetta bæði, búinn að vinna bæði gullskóinn og slá markametið," sagði Aron m.a. við Vísi eftir leikinn.
Aron var spurður út í þessi ummæli, hvernig leið honum með þau?
„Ég átti svo sannarlega skilið að fá þennan lestur, ég var að þvinga skotin mín fullmikið og hægja á spilinu í fyrri hálfleik. Ég tók það á mig og var sammála því, við erum bestir þegar það er flæði í leiknum og þegar við látum boltann ganga hratt og ég er stór partur að við náum þessu flæði."
„Það er bara hörku samkeppni í liðinu sem er frábært og ég eða aðrir getum ekkert kvartað ef við erum teknir út af, en að sjálfsögðu vil ég spila alla leiki eins og allir leikmenn í deildinni."
„Við hlógum svo bara að þessu viðtali daginn eftir. Það héldu einhverjir að ég væri að svara hálfleiksræðunni hjá Óskari sem var alls ekki málið. Ég var bara spurður út í gullskóinn og ég sagðist vera búinn að vinna hann, og svo laumaði ég því inn að ég væri búinn að slá markametið líka," segir Aron.
Horfir á toppsætið
KR situr í 2. sæti átta stigum frá toppliði Víkings og með sex stiga forystu á Breiðablik í 4. sætinu í baráttunni um Evrópusæti. Hvernig lítur framhaldið við Aroni, er horft í möguleikann á toppsætinu eða stefnt á að tryggja Evrópusætið?
„Við erum að ráðast á þennan titil," segir Aron einfaldlega.
Næsti leikur KR er útileikur gegn FH eftir átta daga.

'Við erum að ráðast á þennan titil'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron var tekinn af velli eftir um 70 mínútur gegn ÍBV og lét Arnór Ingva hafa fyrirliðabandið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er kannski erfiðara að loka á mig og reyna að taka mig úr leiknum þegar allir í kringum mig eru að spila vel.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég átti svo sannarlega skilið að fá þennan lestur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aukaspyrnumarki gegn ÍBV fagnað.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR hefur skorað tíu mörk í síðustu tveimur leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sagði við Aron að fótbolti væri liðsíþrótt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elías Már valinn leikmaður júnímánaðar

Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“

Aron valinn leikmaður aprílmánaðar
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 16 | +42 | 43 |
| 2 | KR | 16 | +22 | 35 |
| 3 | Fram | 16 | +13 | 34 |
| 4 | Breiðablik | 16 | +9 | 29 |
| 5 | Valur | 16 | -6 | 19 |
| 6 | Keflavík | 16 | -8 | 19 |
| 7 | ÍA | 16 | -8 | 18 |
| 8 | ÍBV | 16 | -8 | 16 |
| 9 | KA | 16 | -8 | 15 |
| 10 | Stjarnan | 16 | -12 | 15 |
| 11 | FH | 16 | -11 | 13 |
| 12 | Þór | 16 | -25 | 12 |
