Beckham birtir mynd af sér með gömlum vin

Mynd: David Beckham/Facebook

Mynd: David Beckham/Facebook
David Beckham, eigandi Inter Miami og fyrrum landsliðsmaður Englands, birti mynd af sér á samfélagsmiðlum í dag með Diego Simeone, stjóra Atletico Madrid.
Þeir hittust í Miami þar sem HM fer m.a. fram.
„Rakst á gamlan vin í Miami," skrifar Beckham við myndina.
Beckham og Argentínumaðurinn Simeone elduðu grátt silfur saman á sínum tíma.
Beckham var rekinn af velli á HM 1998 í Frakklandi fyrir að sparka í Simeone eftir að sá síðarnefndi fór harkalega í bakið á Beckham.
Beckham náði fram hefndum fjórum árum síðar þegar hann skoraði eina mark leiksins milli liðanna í riðlakeppninni á HM 2002 úr vítaspyrnu.
England komst áfram upp úr riðlinum en Argentína sat eftir með sárt ennið. Beckham sagði eftir leikinn að Simeone hafi reynt ýmislegt til að koma honum úr jafnvægi fyrir vítið en hafi verið mikill herramaður eftir leikinn og óskaði honum góðs gengis á mótinu.
England féll úr leik í átta liða úrslitum eftir tap gegn Brasilíu sem stóð uppi sem sigurvegari að lokum eftir sigur á Þýskalandi í úrslitum.