Fotbolti.net
05.07.26 - 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Glæsilegt mark hjá Ara eftir sendingu frá Júlíusi

Glæsilegt mark hjá Ara eftir sendingu frá Júlíusi
Canon

Mynd: Elfsborg

Júlíus Magnússon var í byrjunarliði Elfsborg þegar liðið fékk Hammarby í heimsókn í sænsku deildinni í dag. Ari Sigurpálsson byrjaði á bekknum.

Staðan var markalaus í hálfleik en Hammarby náði 2-0 forystu í seinni hálfleik.
Ari kom inn á sem varamaður og minnkaði muninn eftir sendingu frá Júlíusi. Júlíus sendi boltann inn á teiginn og Ari skoraði með viðstöðulausu skoti, sláin inn, af stuttu færi.

Nær komust þeir ekki og 2-1 tap staðreynd. Elfsborg er í 4. sæti með 18 stig eftir 12 umferðir.

Hinrik Harðarson var í byrjunarliði Odd þegar liðið tapaði 3-1 gegn Haugesund í næst efstu deild í Noregi. Odd er í 5. sæti með 24 stig eftir 14 umferðir.

Hólmbert Aron Friðjónsson var í byrjunarliði Gwangju þegar liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Ulsan HD í kóresku deildinni í morgun. Gwangju er á botninum með átta stig eftir 16 umferðir.

Sjáðu mark Ara hér fyrir neðan

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.