Englandi stafar mikil ógn af óvæntri hetju Mexíkó

Julian Quinones hefur verið frábær.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Julian Quinones hefur verið frábær.

Mynd: EPA
Á miðnætti á sunnudagskvöld (aðfaranótt mánudags) mætast Mexíkó og England í 16-liða úrslitum HM. Julian Quinones hefur verið skærasta stjarna Mexíkó á mótinu en vegferð hans er óvanaleg.
Hægri bakvarðarstaðan hefur verið hausverkur fyrir Englendinga á mótinu og með Quinones á vinstri vængnum gæti skapast mikil hætta fyrir enska liðið í erfðu loftslagi i Mexíkó.
Quinones er 29 ára, er kominn með þrjú mörk á HM, og vann gullskóinn í Sádi-Arabíu þar sem hann hefur raðað inn mörkum fyrir Al-Qadsiah.

TENGT EFNI
HM um helgina - 32-liða úrslitin klárast og 16-liða úrslitin fara af stað
Fæddur í Kólumbíu
Quinones fæddist í smábæ í suðurhluta Kólumbíu og ólst upp í nokkurri fátækt. Þegar hann var 17 ára gekk hann í raðir mexíkóska liðsins Tigres.
„Ég var ungur og hikandi þegar ég hugsaði út í að yfirgefa land mitt til að sækjast eftir nýjum markmiðum," segir Quinones sem er í dag giftur mexíkóskri konu, á mexíkósk börn og lítur á Mexíkó sem heimaland sitt.
Eftir að hafa spilað fyrir yngri landslið Kólumbíu heyrði hann ekkert frá fótboltasambandi landsins á meðan hann var að skora mörk í Mexíkó. Þegar símtalið kom loksins frá Kólumbíu 2023 þá var hann orðinn gjaldgengur til að spila fyrir Mexíkó og ákvað að gera það í staðinn.
„Mexíkó tók á móti mér opnum örmum og gerði mig að þeim einstaklingi sem ég er í dag," segir Quinones.
Funheitur á HM
Quinones er með þrjú mörk og eina stoðsendingu á HM en enginn mexíkóskur leikmaður hefur komið að fleiri mörkum á einu heimsmeistaramóti síðan skráningar hófust.
Hann skoraði fyrsta mark heimsmeistaramótsins og átti einnig sláarskot í 2-0 sigri Mexíkó á Suður-Afríku í opnunarleiknum. Hann skoraði annað markið í 3-0 sigri gegn Tékklandi og svo fyrra markið í 2-0 sigrinum gegn Ekvador í 32-liða úrslitum.
Hann var valinn maður leiksins bæði gegn Suður-Afríku og Ekvador. Hver sá sem mun spila hægri bakvörðinn fyrir England á sunnudag mun eiga verk fyrir höndum.