Queiroz yfirgefur Gana (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Þjálfarinn Carlos Queiroz er búinn að segja upp starfi sínu hjá landsliði Gana eftir að þjóðin var slegin út í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins á dögunum.
Gana tapaði 1-0 gegn Kólumbíu eftir að hafa fengið fjögur stig í riðlakeppninni, með sigri gegn Panama, jafntefli gegn Englandi og naumu tapi gegn Króatíu.
Queiroz er 73 ára gamall og hefur síðastliðna áratugi eingöngu þjálfað landslið, eftir að hafa gert garðinn frægan sem aðstoðarþjálfari Sir Alex Ferguson hjá Manchester United.
Hann stýrði Real Madrid í eitt tímabil og hefur meðal annars þjálfað Kólumbíu, Portúgal, Íran og Katar á ferlinum.
„Ég yfirgef þessa vegferð fullur af stolti en líka með heilbrigða gremju yfir að hafa ekki komist lengra. Að komast á hærra stig á aldrei að vera markmiðið, það á að vera byrjunin fyrir enn stærri markmið," segir meðal annars í yfirlýsingu frá Queiroz.