Fotbolti.net
05.08.03 - 00:00

Domi kominn til Leeds. (Staðfest)

Leeds United hafa gengið frá samningi við Didier Domi frá Paris St. Germain, en það eina sem Frakkinn á eftir er að standast læknisskoðun.
Leikmaðurinn, sem er 25 ára kom til Leeds á árs lánssamningi, og Leeds hafa svo rétt á að kaupa hann eftir lánstímann, á um það bil 2 milljónir punda samkvæmt BBC.

Læknisskoðunin er á fimmtudaginn.

Domi var hjá Newcastle United í tvö ár, en kom til baka til Paris St. Germain 2001 eftir að ítrakaðar tilraunir hans til þess að komast í byrjunarliðið gengu ekki eftir.

Domie er með samning við Paris St. Germain til Júní 2006, en hann passar ekki inn í framtíðaráform Vahid Halilhodzic, þjálfara PSG og Didier Domi að ferill hans í Ensku deildinni sé að hefjast.

Þessi fyrrum undir 21árs leikmaður Frakklands getur spilað í vinstri bakverðinum og vinstra megin á miðjunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.