05.08.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Breen til Sunderland. (Staðfest)
Gary Breen skrifaði í gær undir 2 ára samning við Sunderland. Þessi 29 ára varnarmaður var laus allra mála hjá West Ham og því þarf Sunderland ekki að borga krónu fyrir kappann. Þetta er annar leikmaðurinn sem kemur til Sunderland á einum sólarhring en miðjumaðurinn Jeff Withley skrifaði undir 11 mánaða samning einnig í gær.
