05.08.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Albert þarf að skipta um númer

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Albert Guðmundsson, leikmaður Fiorentina, þarf að skipta um treyjunúmer fyrir tímabilið en ítalski miðillinn TuttoMercato greinir frá því að félagið ætli að hætta að nota treyju númer tíu.
Félagið heldur upp á 100 ára afmælið sitt í ár og það verður athöfn þann 29. ágúst.
Þar ætlar stjórnin að hafa athöfn þar sem tilkynnt verður að treyja númer tíu verði ekki notuð hjá liðinu á komandi tímabili.
Það er til heiðurs Giancarlo Antognoni sem er leikjahæsti leikmaður Fiorentina í sögu ítölsku deildarinnar. Hann var í treyju númer tíu frá 1972–1987.
Hann starfaði hjá félaginu en hann hætti eftir að hafa verið boðið starf í unglingastarfinu. Það andar köldu á milli hans og stjórnar félagsins og þetta virðist vera leið hjá stjórninni til að grafa stríðsöxina.