Fotbolti.net
05.08.26 - 09:42
Elvar Geir Magnússon

Fékk undanþágu á treyjureglu í Síle (Staðfest)

Vozinha fær treyju 29.

Vozinha fær treyju 29.

Canon

Mynd: EPA

Fótboltasamband Síle hefur veitt undanþágu til Vozinha, markvarðar Grænhöfðaeyja, sem fær að vera með gælunafn sitt á treyju Colo Colo.

Þessi 40 ára leikmaður hefur skrifað undir sex mánaða samning við síleska félagið eftir að hafa slegið í gegn á heimsvísu með frammistöðu sinni á HM.
Nýuppgötvuð dýrategund nefnd í höfuðið á Vozinha
TENGT EFNI

Nýuppgötvuð dýrategund nefnd í höfuðið á Vozinha

Samkvæmt reglum deildarinnar verða menn að merkja sitt rétta nafn á treyjurnar, svo hann ætti að nota Josimar Jose Evora Dias. Gælunöfn eru ekki leyfð en Colo Colo sótti um undanþágu sem félagið fékk.

„Þetta er nafn sem ég hef notað allt mitt líf," segir Vozinha, sem þýðir 'amma' á portúgölsku. „Ef amma væri á lífi í dag þá væri hún stolt. Ég vonast til að nota nafnið út lífið henni til heiðurs."

Vozinha varð gríðarlega vinsæll eftir að hafa átt stórleik fyrir Grænhöfðaeyjar í markalausu jafntefli gegn Spáni í riðlakeppni HM. Fylgjendafjöldi hans á samfélagsmiðlum jókst frá 50 þúsund í næstum 30 milljónir.

Vozinha hjálpaði þjóð sinni að komast í útsláttarkeppnina þar sem liðið tapaði í framlengingu gegn Argentínu í 32-liða úrslitum. Hann var valinn í lið mótsins hjá FIFA.

Á ferli sínum hefur hann spilað í Slóvakíu, Angóla, Moldóvu, Kýpur og síðast með B-deildarliðinu Chaves. Hann er nú genginn í raðir Colo Colo sem er sigursælasta félag Síle.

„Þrátt fyrir að hafa spilað í smærri deildum og hjá félögum sem eru ekki stórlið þá fannst mér ég alltaf vera leikmaður sem ætti heima í stóru félagi. Þegar Colo Colo hafði samband var þetta aldrei neinn vafi," segir Vozinha.
Fékk undanþágu á treyjureglu í Síle (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.