05.08.26 - 11:44
Elvar Geir Magnússon
Gutierrez til Leverkusen (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Þýska félagið Bayer Leverkusen hefur tilkynnt um komu spænska vinstri bakvarðarins Miguel Gutierrez frá Napoli. Hann var aðeins eitt tímabil hjá ítalska félaginu.
Gutierrez er 25 ára gamall og hefur verið á mála hjá Napoli síðasta árið. Þar áður gerði hann frábæra hluti með Girona sem komst óvænt í Meistaradeildina árið 2024. Hann fer nú til Leverkusen fyrir 30 milljónir evra og hefur skrifað undir samning til 2031.
Hann spilaði 36 leiki í öllum keppnum meðan hann var á Ítalíu en liðið hafnaði í öðru sæti ítölsku A-deildarinnar, á eftir Inter.
„Ég hef heyrt mikið um Bundesliguna, séð marga leiki og hlakka til að upplifa stemninguna á þýskum leikvöngum," segir Gutierrez.

And now you know ????
— Bayer 04 Leverkusen (@bayer04_en) August 5, 2026
¡Bienvenido, Miguel Gutierrez! ???? pic.twitter.com/JtUzO5YyTH

Gutierrez.

Mynd: EPA