Fotbolti.net
05.08.26 - 22:28
Brynjar Ingi Erluson

Nörgaard til Everton (Staðfest)

Nörgaard til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Everton

Danski miðjumaðurinn Christian Nörgaard hefur yfirgefið Arsenal og samið við Everton en samningurinn er til tveggja ára.
Nörgaard kemur til Everton frá Arsenal fyrir sjö milljónir punda, aðeins ári eftir að Lundúnafélagið keypti hann frá Brentford.

Hinn 32 ára gamli miðjumaður náði ekki að festa sig í sessi hjá Arsenal og lék aðeins 20 leiki í öllum keppnum. Þar af voru sjö í ensku úrvalsdeildinni þar sem liðið varð Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár.

Everton hefur leitað að reynslumiklum leikmönnum eftir að Seamus Coleman og Idrissa Gueye yfirgáfu félagið. Nörgaard fellur vel að þeirri hugmynd enda lék hann 196 leiki á sex árum hjá Brentford og var lengi einn af lykilmönnum liðsins.

„Tilfinningin er frábær og ég er ótrúlega ánægður með að vera kominn til Everton. Margt kom til en mér fannst ég þurfa breytingu og stærra hlutverk á vellinum.“

„Þegar ég ræddi við David Moyes og aðra hjá félaginu og heyrði um verkefnið vakti það strax áhuga minn. Eftir að ég kom hingað hefur sú tilfinning bara styrkst,“ sagði Nörgaard.

Hann er annar miðjumaðurinn sem Everton fær í sumar en Hayden Hackney hefur þegar komið frá Middlesbrough.

Everton hefur leik í ensku úrvalsdeildinni gegn Crystal Palace á Hill Dickinson-leikvanginum 22. ágúst.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.