05.08.26 - 09:41
Kári Snorrason
Salah mættur til Tyrklands og myndaður í treyju Trabzonspor

Tekið vel á móti Salah í Tyrklandi.

Mynd: Trabzonspor

Tekið vel á móti Salah í Tyrklandi.

Mynd: Trabzonspor
Mohamed Salah er búinn að finna sér nýtt lið og er að ganga í raðir Trabzonspor í Tyrklandi.
Hann er mættur til Tyrklands og hefur félagið birt myndir af honum í treyju Trabzonspor. Aðeins á eftir að ganga frá formsatriðum svo að skiptin gangi formlega í gegn.
Salah var einnig í viðræðum við tyrkneska félagið Besiktas en nú er orðið ljóst að hann fer til Trabzonspor og skrifar hann undir tveggja ára samning við félagið.
Ljóst er að Salah muni leika í treyju númer 61 en ekki númer 11 eins og hann var í hjá Liverpool. Númerið 61 er tákn fyrir borgina Trabzon þar sem það er héraðsnúmerið í tyrkneska bílnúmerakerfinu.
Salah er 34 ára gamall en samningur hans hjá Liverpool rann út í sumar. Hann er einn albesti leikmaður í sögu enska félagsins en hann skoraði 257 mörk í 442 leikjum með Liverpool.
Salah vann úrvalsdeildina tvisvar, Meistaradeildina tvisvar, enska bikarinn einu sinni og deildabikarinn einu sinni.

???????????????????? ????????????????: ON ???? pic.twitter.com/mqi1DLa9DH
— Trabzonspor (@Trabzonspor) August 5, 2026